Leita í fréttum mbl.is
Embla

Eina ásættanlega niðurstaðan er: NEI

Við því má búast að fjölmargir kjósendur láti það ráða miklu og jafnvel úrslitum um hvernig þeir kjósa í næstu kosningum hvernig þingmenn greiða atkvæði í dag um ríkisábyrgð vegna Icesave-nauðungarsamninganna. Málið er einfaldlega svo gríðarlega stórt að önnur falla algerlega í skuggann.

Mikill meirihluti landsmanna er samkvæmt skoðanakönnunum andvígur því að ríkisábyrgð verði samþykkt og rúmlega 37.000 Íslendingar hafa mótmælt henni á Facebook. Þúsundir Íslendinga hafa ennfremur heitið því á sama stað að kjósa ekki þá þingmenn sem kjósa með ríkisábyrgð.

Eina ásættanlega niðurstaðan í þeim efnum er að ríkisábyrgð verði hafnað, að þingmenn segi nei. Einhverjum kann að þykja freistandi að sitja hjá. En hjáseta er þó ekkert annað en argasta ábyrgðarleysi og getur aldrei skilgreinst sem andstaða. Ef eitthvað er slíkt sama og samþykki.

Það er lágmarks krafa að alþingismenn taki afstöðu í stórum málum sem þessu með eða á móti. Ef þeir treysta sér ekki til þess veit ég satt bezt að segja ekki hvað þeir eru að gera á Alþingi.


mbl.is 10 vikna umfjöllun að ljúka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Maí 2012
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Senda í CCI | Hafðu samband