Miðvikudagur, 26. október 2011
Þá er aldrei kosið aftur
Evrópusamtökin fagna því á bloggsíðu sinni að tillaga um þjóðaratkvæðagreiðslu um veru Bretlands í Evrópusambandinu skyldi vera felld í brezka þinginu síðastliðið mánudagskvöld þrátt fyrir að skoðanakannanir hafi ítrekað sýnt undanfarin ár að mun fleiri Bretar vilji segja skilið við sambandið en vera þar áfram innanborðs og að mikill meirihluti vilji að slíkt þjóðaratkvæði fari fram.
Þá liggur væntanlega fyrir hvernig Evrópusamtökin tækju því ef Ísland gengi í Evrópusambandið og meirihluta þjóðarinnar líkaði síðan ekki vistin þar og vildi út. Nú er ekki beinlínis hlaupið út úr sambandinu en það væri ljóslega ekki einu sinni í boði að mati samtakanna að láta reyna á það og byrja á því að leyfa þjóðinni að segja álit sitt á því hvort það skyldi gert.
Vinnureglan er einu sinni sú að kjósa aftur og aftur um inngöngu í Evrópusambandið í þjóðaratkvæði eða eitthvað samrunaskref innan sambandsins (í þau fáu skipti sem slíkt er leyft). Þegar síðan og ef samþykki næst fram er hins vegar aldrei kosið aftur.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt 27.10.2011 kl. 20:13 | Facebook
Nýjustu færslur
- ESB ekki aðili að makríldeilunni?
- Færi aldrei fyrir dómstóla?
- Snýst um gengi gjaldmiðla
- Matvælaverðið í Svíþjóð
- Þá er aldrei kosið aftur
- Verður ekki samið um löggjöfina
- Þetta er alltaf jafn fyndið
- Evran á síðasta söludag
- Hver er samningsafstaða Íslands í sjávarútvegsmálum?
- Kína lánveitandi evrunnar til þrautavara?
- Eru ákvarðanir Alþingis endanlegar?
- Fréttablaðið eða Capacent?
- Framboð gegn sitjandi formanni
- Hvar varst þú 11. september 2001?
- Næsti þjóðarpúls verður áhugaverður
Eldri færslur
- Apríl 2012
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006

Athugasemdir
Í fyrirsögn kalla Evrópusamtökin það "and-ESB tillögu" að leggja til lýðræðislega umfjöllum, að ósk meirihluta þjóðarinnar.
Án þess að reyna að gera lítið úr skrifurum Evrópusamtakanna þá leyfi ég mér að halda því fram að þeir komi ekki auga á fáránleikann. Þeir litu í alvöru á það sem sigur að taka af fólki réttinn til að kjósa.
Haraldur Hansson, 27.10.2011 kl. 00:40
Noðurstaða atkvæðagreiðslunnar í breska þinginu var fengin fram með hótunum, svona líkt og aðildarumsókn okkar var afgreidd á Alþingi.
Þingmönnum breska íhaldsflokksins var grímulaust og opinberlega hótað því að frami þeirra í pólitík yrði stöðvaður, ef þeir greiddu tillögunni sitt atkvæði. Samt sem áður var ótrúlegur fjöldi þeirra sem hundsuðu fyrirmæli foringjans. Þeir þingmenn töldu sig væntanlega vera bundnari af tryggð við kjósendur sína en flokkinn.
Nokkuð kunnuglegt!
Gunnar Heiðarsson, 27.10.2011 kl. 08:53
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.