Fimmtudagur, 25. janúar 2007
Hvað vakir fyrir Vinstri-grænum?
Hvað skyldi vaka fyrir þeim Kolbrúnu Halldórsdóttur og Hlyni Hallssyni, þingmönnum Vinstri-grænna, með því að leggja fram þingsályktunartillögu á Alþingi um að kosningaaldur verði lækkaður niður í 16 ár? Því er oft haldið fram, og án efa talsvert til í því, að fyrst þegar ungt fólk fær pólitískan áhuga hafi það ríka tilhneigingu til að verða róttækt og halla sér annað hvort vel til vinstri eða vel til hægri. Sennilega frekar vel til vinstri. Síðan fer fólk yfirleitt að róast eftir það og mýkjast í skoðunum.
Í ljósi þessa veltir maður því fyrir sér hvort raunverulega hugmyndin að baki þessari tillögu Kolbrúnar og Hlyns sé sá að reyna að auka fylgi Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs?
Es. Röksemdafærsla Hlyns fyrir tillögu þeirra Kolbrúnar (ef röksemdafærslu skyldi kalla), sem fram kemur á bloggsíðu hans, er annars alveg stórkostleg þar sem hann talar m.a. um að gagnrýni á tillöguna feli í sér vantraust á að börn og unglingar hafi þroska til að taka afstöðu í þjóðmálum og sveitarstjórnarmálum.
|
Vilja lækka kosningaaldurinn í 16 ár |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:36 | Facebook
Nýjustu færslur
- ESB ekki aðili að makríldeilunni?
- Færi aldrei fyrir dómstóla?
- Snýst um gengi gjaldmiðla
- Matvælaverðið í Svíþjóð
- Þá er aldrei kosið aftur
- Verður ekki samið um löggjöfina
- Þetta er alltaf jafn fyndið
- Evran á síðasta söludag
- Hver er samningsafstaða Íslands í sjávarútvegsmálum?
- Kína lánveitandi evrunnar til þrautavara?
- Eru ákvarðanir Alþingis endanlegar?
- Fréttablaðið eða Capacent?
- Framboð gegn sitjandi formanni
- Hvar varst þú 11. september 2001?
- Næsti þjóðarpúls verður áhugaverður
Eldri færslur
- Apríl 2012
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006


Athugasemdir
Er ekki rétt að unglingarnir nái eðlilegum þroska áður en þau fara að kjósa?
Heimir L Fjeldsted, 25.1.2007 kl. 11:33
Þessi pæling hjá þeim á líklega jafn margar ástæður og fjöldi 16 og 17 ára unglinga á Íslandi í dag
Heiða B. Heiðars, 25.1.2007 kl. 11:40
Hvað veit maður. Það er allavega t.d. þekkt að vinstriflokkar í Evrópu eru mjög frjálslyndir í innflytjendamálum, auka straum innflytjenda til landa sinna og veita þeim borgaralega réttindi sem fyrst, m.a. í því skyni að reyna að fjölga kjósendum sem líklegir eru til að kjósa þá.
Hjörtur J. Guðmundsson, 25.1.2007 kl. 11:45
Já og svo ætti að gera kröfu um að fólk sé skuldlaust og eigi einhverjar eignir. En kannski helst að það sé til í að gegna herskyldu í leiðinni.
En það er eina leiðin til þess að fólk geti tekið ábyrgð á því hvernig það kýs. Eignalaus maður hefur engu að tapa skattalega séð. Maður sem ekki þarf að gegna herskyldu varðar engu um þau stríð er öðrum er sagt á hendur. Einfalt mál.
Pétur Guðmundur Ingimarsson, 25.1.2007 kl. 13:50
Er ekki líka þekkt að stjórnvöld sem telja sig ekki eiga mikla atkvæðamöguleika gagnvart minnihlutahópum, reki mjög harða stefnu gagnvart þeim og reyni hvað þeir geta til þess að koma í veg fyrir að þeir geti kosið? t.d að fangelsa stórann hluta þeirra og hirða af þeim kosningaréttinn
Vignir Örn Hafþórsson (IP-tala skráð) 25.1.2007 kl. 13:53
Vignir:
Tja, hvaða ríki ertu nákvæmlega að tala um í því sambandi?
Hjörtur J. Guðmundsson, 25.1.2007 kl. 14:54
Lýðræði er ekkert annað en kúgun meirihlutnas. Við getum endalaust rætt fram og aftur hver má kjósa og hver ekki og eflaust góð og gild rök fyrir ýmsum útfærslum. Ég vitna í orð Péturs hér framar sem koma okkur spánskt fyrir sjónir en eru í sjálfum sér rétt. Það er bara spurning hvort við styðjum slík gildi eða ekki. Eiga allir að fá að kjósa? það ekki svo í dag en hver á að fá kjósa og hver ekki og afhverju. Persónulega finnst mér ekki gott ef börn og unglingar eru að fara kjósa.
Vilhjálmur Andri Kjartansson, 25.1.2007 kl. 15:45
Það er bara lítill hluti unglinga á þessum aldri sem að spáir yfir höfuð e-ð í pólitík, sem er bara allt í lagi, þau hafa nóg annað að gera. Þau hafa þess vegna voða lítið annað að kjósa eftir heldur en skoðanir mömmu og pabba. Er ekki alveg í lagi bara að leyfa börnunum að vera börn aaaaaaðeins lengur áður en við förum að setja á þau enn eina pressuna um að fullorðnast, þ.e. að fara að kynna sér stefnur og málefni stjórnmálaflokka - sem ég vona samt svo sannarlega að þau geri þegar þau verða aðeins eldri
Persónulega fannst mér fínt að vera bara í framhaldsskóla og í íþróttum á þessum árum...skipta mér sem minnst af pólitík...
Finnst annars fínn punkturinn hjá þér - furðulegt að tala um ekki nægilegan þroska til að keyra og þroska til að kjósa á sama tíma...
Margrét Elín Arnarsdóttir, 25.1.2007 kl. 16:43
Punkturinn hans Ragnars s.s. ;)
Margrét Elín Arnarsdóttir, 25.1.2007 kl. 16:44
Kúgun meirihlutans á minnihlutanum. Tja, ef menn geta ómögulega komið sér saman um eitthvað, hvort er eðlilegra að verði ofan á sjónarmið meirihlutans eða sjónarmið minnihlutans? Væri betra ef minnihlutinn "kúgaði" meirihlutann?
Lýðræðið gengur út á það að fyrst öllum verður seint gert til geðs þá sé eðlilegra að reynt sé að koma til móts við sem flesta, s.s. meirihlutann. Öllum, þ.m.t. minnihlutanum, séu hins vegar tryggð grundvallarmannréttindi.
Hjörtur J. Guðmundsson, 25.1.2007 kl. 17:03
Hjörtur ég er ekki að fara fram á að minnihlutinn eigi að ráða en vildi bara koma þessu á framfæri svona til að minna fólk á að lýðræði er ekkert alheilagt og hefur sína galla eins og flest kerfi. Mér finnst oft eins og t.d. samfylkingin vera að heimta íbúalýðræði og hitt og þetta, lítum á Hafnarfjörð og kosningarnar um álverið þar. Ef kjörsókn er léleg og allir sólar menn mæta og kjósa og fella skipulagið er þá ekki lobíista hópur farinn að hafa óhófleg áhrif?
Vilhjálmur Andri Kjartansson, 26.1.2007 kl. 02:08
Hehe, nei ég áttaði mig nú á því. En vildi engu að síður nefna þetta til sögunnar. Sagði Churchill ekki að menn hefðu sagt að færa mætti rök fyrir því að lýðræðið væri versta stjórnkerfið fyrir utan öll hin sem hefðu verið reynd ;)
It has been said that democracy is the worst form of government except all the others that have been tried.
Hjörtur J. Guðmundsson, 26.1.2007 kl. 02:16
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.